fréttir

50 ár frá komu Volvo 343 til Íslands

Haustið 1976 byrjaði Veltir Hf. umboð fyrir Volvo á Íslandi á þessum tíma að auglýsa nýjan “smábíl” Volvo 343. Í auglýsingum er minnst á sérstaka aksturseiginleika bílsins, sparneyttni og hagstætt verð. Þetta var fyrir genginsbreytinguna árið 1981. Í október 1976 var sett upp mikill bílasýning hjá Velti í Volvo-salnum. Bíllinn var árgerð 1977 og var framleiddur í Hollandi, og var ansi frábrugðinn þeim sænsku bílum sem höfðu komið hingað til lands. Bíllinn var næstminnsti volvo bíllinn sem framleiddur hafði verið til þessa. Bíllinn var í tveimur gerðum, L og DL og var vélin 70 hestöfl, 4 strokkar og sjálfskiptur. Beygjuradísu bílsins var 9.2 metrar og var bensíneyðslan um 9-10 lítrar á 100 km. Bíllinn var 4.2 metrar á lengd og 1,6 m á breidd. Bíllinn var fáanlegur í sex litum og var auglýstur sem rúmgóður fjölskyldubíll. Volvo 343 var þriggja dyra bíll en hægt var að leggja aftursætin niður og fá þannig gott skott. Verð á Volvo 343 L var 2 milljónir og 50 þús, en DL útgáfan var 2 milljónir 199 þúsund krónur.

Á þessu ári voru rúmlega 3200 volvo fólksbílar á Íslandi og um 620 Volvo vörubílar að auki samkvæmt upplýsingum frá Bifreiðaeftirliti Ríksins.

Í nóvember 1976 kom stór frétt um bílinn í Morgunblaðinu. Þar kom ýmsilegt fleira fram, en blaðamanni fannst bíllinn of dýr og vélin kraftlaus. Audi 80 og BMW 316 voru á sama verði en Passat var 400 þús. krónum ódýrari.

Volvo 343 var framleiddur til ársins 1990 í 472,434 eintökum. Bíllinn tók ýmsum breytingum á þessum árum, en mestar breytingar urðu 1981.

Viðburðir