Í dag, sunnudaginn 22. mars héldum við skúrviðburð, en slíkan viðburðum höfum við ekki haldið í 2 ár. Það var flott mæting á Kársnesbrautina í þessum viðburði, en 15 manns létu sjá sig. Það var gott spjall og kökur og kaffi í boði. Hann Bartosz bauð okkur í nýja skúrinn sinn, en hann er lærður bifvélvirki frá Póllandi og hefur þekkingu á body vinnu og öðru. Hann var með nokkur verkefni í gangi í skúrnum sem hann sagði okkur frá en hann deilir skúrnum með vini sínum sem er bílamálari. Þarna er því næga þjónustu að finna. Þökkum þeim kærlega sem komu á þennan viðburð.
Við munum fljótlega auglýsa næstu viðburði félagsins, en við erum að skipuleggja safnaferð og Suðurlandsrúnt á Hvolsvöll.
















