Aðalfundur Volvoklúbbs Íslands verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 18:00, í neðri safnaðarsal Áskirkju við Vesturbrún 30, fyrir ofan Laugardalinn í Reykjavík. Léttar veitingar í boði. Gengið er inn á vinstri hlið kirkjunnar, við neðra bílastæði. Engir stigar, góð aðkoma. Pössum 2 metra regluna, sleppum því að heilsast.
Athugið breyttan fundartíma og breytta staðsetningu, en fundinum var frestað vegna Covid19.
Vonumst til að sjá sem flesta. Endilega skráið ykkur á viðburðinn á facebook.
Dagskrá:
Setning fundar
Kosning fundarstjóra og ritara
Ársreikningar lagðir fram
Ársskýrsla stjórnar
Kosning varamanna
Tillaga að ársgjaldi 2021
Lagabreytingar
Önnur mál