Aðalfundur verður haldinn 18. mars

Aðalfundur Volvoklúbbs Íslands verður haldinn miðvikudaginn 18. mars næstkomandi kl. 20:00 í þakhúsi Brimborgar og er gengið inn vinstra megin við aðalinngang.

Dagskrá fundarins:

  1. Setning fundar, Ragnar Þór Reynisson, formaður
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Ársreikningar lagðir fram
  4. Ársskýrsla stjórnar
  5. Kosning varamanna
  6. Tillaga að ársgjaldi 2016
  7. Lagabreytingar
  8. Önnur mál

– Lagabreytingartillögur skulu berast til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund skv. 7. grein samþykkta félagsins.
– Samkvæmt 9. grein samþykkta situr stjórn í 2 ár í senn. Þess vegna mun sitjandi stjórn sitja fram að næsta aðalfundi (2016). Hins vegar verður kosið um tvo varamenn í stjórn. Framboð til þessa skal berast stjórnar í pósti eigi síðar en viku fyrir aðalfund skv. 9. grein.
Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Comments are closed.