Áramótaakstur 2024

Við endum árið með viðburði. Eins og allt árið er búið að vera metnaðarfullt í öllum viðburðum þá bjóðum við upp á glæsilegan hópakstur til að loka þessu afmælisári. Að vanda hefst aksturinn frá bílastæðinu við Skautasvellið og Húsdýragarðinn í Laugardal. Stefnan er tekin á Breiðholtið og keyrum við eftir hringveginum þar að mestu leiti. Ætlum að enda rúntinn í Mjóddinni við Breiðholtskirkju.

Hittingur kl. 13:00, þriðjudaginn 31. desember. Akstur hefst kl. 13:15-13:20, eftir því sem stemning leyfir.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Akstursleiðin í stórum dráttum:

Bílastæðið við Skautasvellið og Húsdýragarðinn í Laugardal.
Engjavegur að Glæsibæ. Gnoðarvogur að Skeiðarvogi.
Miklabraut-Vesturlandsvegur-Höfðabakki. Hægri beygja til Vesturhóla
Vesturhólar Að Suðurhólum. Hægri beygja
Suðurhólar að Austurbergi og Hólabrekkuskóla og FB. – Stopp á bílstæðum á þessu svæði nærri FB eða íþróttahúsi og Sundlaug.
Austurberg að Norðurfelli. Vinstri beygja.
Suðurfell að Jaðarseli. Yfir á ljósin hér inn í Seljahverfi.
Jaðarsel að Holtseli, vinstri beygja við Seljahlíð hjúkrunarheimili.
Holtasel niður að Seljaskógum, vinstri beygja.
Seljaskógar að Breiðholtsbraut. Vinstri beygja á Breiðholtsbraut. Hægri beygja inn Stekkjarbakka,

Vinstri beygja að bílastæði Breiðholtskirkju.

Endum á bílastæði í Mjóddinni við Breiðholtskirkju.

Stefnum á stuttu stoppi við FB í Austurbergi, eða nærliggjand bílastæðum.

Comments are closed.