Síðustu vikur hefur verið auglýstur einn af flottari Volvo 760 bílum á landinu. Þessi er árgerð 1990, og ekinn tæpar 200 þús. kílómetra og sjálfskiptur. Bíllinn kom á götuna 16. mars 1990. Bíllinn hefur nú verið seldur til nýs eiganda.
Bíllinn var smíðaður í Volvo verksmiðjunni Kalmar, rétt fyrir utan borgina Kalmar í Svíþjóð. Verksmiðjan starfaði frá árinu 1974, en var lokað árið 1994.