Loading Events

« All Events

Jólahlaðborð í Gullhömrum Grafarvogi 21. nóvember

November 21

Volvoklúbburinn skipuleggur Jólahlaðborð fyrir félagsmenn og maka, laugardaginn 21. nóvember í Gullhömrum í Grafarvogi. Verð á hlaðborði er 15.900 kr. Staðfesta og greiða þarf fyrir 7. nóvember 2026. Við höfum bókað 30 sæti í þennan viðburð en skilum lokatölum og greiðslum viku fyrir viðburðinn. Hægt verður að millifæra til okkar fyrir 7. nóvember eða fá kröfu í heimabanka. Við tökum ekki við greiðslum fyrir 1. nóvember.

Skráning: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1HsJbFT9RfNQjk2Dx_BV4K0j–GFcPaJPbPxGcAwoNW0/edit?usp=sharing

 

Hús opnar kl. 19:00

https://gullhamrar.is/jolahladbord/

Jólahlaðborð
Forréttir
Úrval af síldarréttum með rúgbrauði og smjöri
Graflax með sinnepssósu
Heitreyktur lax með tartarsósu Sjávarréttasalat
Sjávarréttapaté með hvítlaukssósu
Hátíðarpaté með cumberlandsósu
Grafið lamb með fersku salati
Aðalréttir
Hangikjöt með uppstúf
Sinnepsgljáður hamborgarhryggur
Hægeldað lambafillet
Ekta dönsk fleskesteik
Salvíukryddaðar kalkúnabringur
Meðlæti
Mozzarella með tómat og parmesanosti
Sykurbrúnaðar kartöflur
Kalkúnafylling
Kartöflugratín
Eplasalat
Ferskt salat
Ábætisréttur
Tobleroneís
——————-
Kristján Guðmundsson
laðar fram ljúfa tóna á flygil í borðhaldinu
Hljómsveit hússins
skemmtir undir lok borðhalds til kl. 23.30

Details

  • Date: November 21