Félagskírteini ársins 2026 ásamt fréttabréfi og gjöf ársins fóru í dreifingu í gær. Félagar ættu því að fá sendinguna á allra næstu dögum frá okkur.
Sem fyrr er skírteini prentað hjá Vörumerkingu en hannað af stjórn klúbbsins. Fréttabréf er prentað hjá Litróf og gjöf ársins keypt hjá Prentagram.is. Pökkun fór fram hjá Ás vinnustofu líkt og undanfarin ár og sér Íslandspóstur um dreifingu.
Það eru mörg handtök í þessu ferli og við reynum alltaf okkar best að flýta þessari vinnu.
