Búið er að pressa yfir 200 félagsskírteini og voru þau send til dreifingaraðila í síðustu viku. Búast má við að skírteinin berist til félaga núna eftir helgina með póstinum.
Gerð félagsskírteina er langt ferli, frá hönnun, til samþykktar, til framleiðslu, til pökkunar, og loks til dreifingar. Við fá oft fyrirspurnir varðandi skírteinin og reynum að áætla tímasetninguna, en vanalegast berast skírteinin í apríl mánuði, þótt við séum alltaf að reyna flýta þessu verkefni fyrr inn á árið.
Vonum að félagar verði ánægðir með skírteinin sem eru í nýjum lit í ár.