Fjölskyldurúntur á Eldstó á Hvolsvelli

Volvoklúbburinn stendur fyrir fjölskyldurúnti á Eldstó Art Café á Hvolsvelli, laugardaginn 6. júní.
Lagt verður af stað kl. 13:00 frá Shell/10 – 11 við Vesturlandsveg í Reykjavík. Stoppað verður við N1 Bensínstöðina á Selfossi um kl. 13:40. Haldið verður áfram kl. 13:50 og endað svo á Hvolsvelli þar sem hjónin Þór og Guðlaug taka á móti hópnum með þeirra alkunnu gestrisni. Hægt verður að kaupa veitingar hjá þeim. Að loknum veitingum og spjalli verður keyrt í bæinn.

Eldstó ferðin var einnig farin í fyrrasumar og var mál manna að ferðin hafi verið mjög skemmtileg og áhugaverð. Hvetjum einnig Volvoáhugamenn af landsbyggðinni að slást með í för. Hvolsvöllur er um 106 km frá Reykjavík.

 

IMG_0288

Þór á Eldstó á Hvolsvelli.

Comments are closed.