Fyrsti Volvo S90 Inscription AWD afhentur á Íslandi

Brimborg afhenti fyrsta Volvo S90 Inscription bíllinn í liðinni viku. Bíllinn er hlaðinn búnaði og má þar nefna fjórhjóladrif, öfluga 235hö dísil vél, loftpúðafjöðrun, Nappa leðuráklæði, Volvo High Performance hljómtæki, veglínuskynjara, árekstrarvara að framan, vegskiltalesara, borgaröryggi, bílastæðaaðstoð, bakkmyndavél og svo mætti lengi telja.

Það var fyrirtækið Servio sem fékk bílinn afhentan en Servio er dótturfyrirtæki Securitas og sér m.a. um öryggisgæslu, keyrslu fyrirmanna og þekktra einstaklinga auk þess að skipuleggja lúxus skoðunarferðir og margt fleira.

Nýr Volvo S90 á eftir að sóma sér vel í þjónustu þeirra og sjá til þess að þeir sem nýta sér þjónustu þeirra upplifi fyllsta öryggi, þægindi og ánægjulegan ferðamáta.

Sigurður Jóhann Stefánsson frá Servio, Ólafur Ingi Stígsson ráðgjafi Volvo og Gísli Jón Bjarnason sölustjóri Volvo.

 

Comments are closed.