Þessi glæsilegi Volvo 940SE var nýlega auglýstur til sölu og var óskað eftir tilboðum. Á endanum ákvað eigandinn bíllinn yrði bestur geymdur á Samgönguminjasafninu í Stóragerði. Áhugasamir geta því séð þennan stórkostlega bíl þar til sýnis í framtíðinni. Þetta voru sannkallaðir forstjórabílar þegar þeir komu hingað til landsins og er þessi sérlega velbúinn og hefur kostað sitt á sínumtíma. Einn með öllu eins og sagt er.
Þetta er einstaklega fallegur og mikið endurnýjaður 940 bíll, eflaust eini SE bíll landsins. Bíllinn hefur hefur verið geymdur inni á veturna á meðan núverandi eigandi hefur átt bílinn, eða síðan 2009.
230FB mótor
Ekinn 280þús km
Ljóst leður
Rafmagn + minni í bílstjórasæti
Tvívirk topplúga
Fjarstýrð samlæsing
Rafmagn í öllum gluggum
Myndir með fréttinni koma frá eiganda bílsins.