Í gær, 2. ágúst, héldum við seinni grillviðburð sumarsins þegar við tókum á leigu svæði í Guðmundarlundi fyrir félagsmenn til að hittast og borða pylsur og meðlæti.
Rúmlega 30 manns mættu og margir tóku fjölskyldur með. Veður var frábært og heppnaðist grillið vel. Þetta er viðburður sem við höfum haldið frá árinu 2016, en með hléum þegar samkomutakmarkanir voru. Þetta var einnig í fyrsta sinn sem við náðum að halda tvö grill yfir sumarið, en það hefur lengi verið stefnan að ná slíku, en alltaf hefur veður náð að trufla slíkt.
Þökkum þeim sem lögð leið sína í Guðmundarlund í Kópavogi og sjáumst á næsta viðburði félagsins, en það verður nánar auglýst síðar.