Fyrsta grill sumarsins fyrir félaga í Volvoklúbbi Íslands verður haldið miðvikudaginn 21. júní næstkomandi í Guðmundarlundi. Grillið hefst kl. 18:00 og í boði er léttur grillmatur og meðlæti. Þetta er fjölskylduhátíð sem var einnig haldin í fyrra og var vel heppnuð. Við fáum aðstöðu þarna í lundinum sem er yfirbyggð ef veðurspáin verður óhagstæð.
Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn svo hægt sé að áætla veitingar, og er skráning á Facebook., eða með því að senda okkur tölvupóst postur(hja)volvoklubbur.is.
Leiðbeiningar að Guðmundarlundi frá Breiðholtsbraut
- Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá nýju World Class og Bónus).
- Keyrt er eftir Vatnsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið.
- Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur.
- Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur.