Minnum á hina árlega ferð til Borgarfjarðar á Mótorhjóla og fornbílasýningu Rafta Bifhjólafélags Borgarfjarðar og Fornbílafjelags Borgarfjarðar laugardaginn 13. maí. Hisst verður kl. 11:30 á bílastæðinu við BAUHAUS, Lambhagavegur 2 – 4. Áætluð brottför til Borgarfjarðar verður kl. 12:00. Hittumst tímanlega og tökum myndir og spjall. Við leitum einnig að bíl til að leiða hópinn til Borgarfjarðar.
Skráið ykkur á viðburðinn á facebook.
Við höfum fengið að raða Volvo fornbílum upp á sýningarsvæðinu hjá þeim en fólk er alls ekkert bundið við að vera allan tímann þó svo bílnum sé lagt á sýningarsvæðinu.
Þeir sem greitt hafa félagsgjöld 2017 fá frítt í göngin báðar leiðir með miðum frá Volvoklúbbi Íslands.