fréttir

Laplander nýsmíði – Vestfjarðaleið heilsar

Volvoklúbburinn stóð fyrir viðburði í Mosfellsbæ í dag þegar Lárus Eiríksson bauð okkur í skúrinn. Þar inni er frábært verkefni á heimsvísu, en Eiríkur hefur unnið að nýsmíði á Volvo Laplander bíl síðustu árin. Bíllinn hafði verið í geymslu í áratugi þar til verkefnið hófst af alvöru fyrir nokkrum árum síðan. Bíllinn er stórkostlegur að sjá, sprautuvinna frábær og Vestfjarðaleiða liturinn geggjaður. Bíllinn fór í vikunni í sína fyrstu ökuferð í 40 ár. Næstu skref eru að fínstilla vélarganginn, kom sætum í bílinn og setja á númer.

Virklega fróðlegt að heyra sögu þessa bíls, og einnig kom einn fyrrum starfsmaður Veltis og Volvo á viðburðinn og sagði skemmtilegar sögur.

Það voru 16 aðilar sem komu á þennan viðburð og gekk vel að koma veitingum út.

Þökkum Lárusi og fjölskyldu fyrir að bjóða okkur inn í skúrinn og skoða þennan merkilega bíl.

Viðburðir