Eftir smá grams í myndasafni þá fann einn stjórnarmaður Volvoklúbbsins ljósmyndir og upptökur frá hópakstri Volvoáhugamanna frá árinu 2008. Einhver sem man tilefnið af þessum hópakstri? Þetta er áður en Volvoklúbburinn var formlega stofnaður, en hópur manna stóð fyrir reglulegum hittingum, þá helst á gamlárskvöld, meðan aðrir (Borgfirðingar) fór út á land í tjaldferðir.







