Brimborg hefur opnað nýjan og glæsilegan volvo sýningarsal við Bíldshöfða 6. Framkvæmdir hófust 15. desember og lauk 25. apríl síðastliðinn. Salurinn er hannaður með arkítektum Apparats samkvæmt ströngustu kröfum Volvo.
Gengið er inn um nýjan inngang sem er viðarklæddur og færir hlýleika inn í glæsilegt sýningarrýmið. Í salnum er einstaklega fallegt rými þar sem viðskiptavinir Volvo geta haft það notalegt á meðan þeir bíða eftir aðstoð söluráðgjafa eða verkstæðismóttöku. Öll húsgögn og aðrir munir eru sérvaldir af Volvo inn í salinn og þar nýtur sín sérlega falleg skandinavísk hönnun. Rúður nýja salarins eru þær stærstu á Íslandi og á þeim eru engir póstar. Þær ramma skemmtilega inn bílana sem valdir hafa verið til þess að prýða sýningargluggana í hvert skipti.