Fyrstu Volvo XC90 bílarnir koma til landsins í lok maí og formleg frumsýning hjá Brimborg verður í byrjum júní. Mikil eftirvænting hefur verið eftir bílnum enda markar hann stór tímamót hjá Volvo. Með Volvo XC90 kynna hönnuðir Volvo nýtt útlit sem mun einkenna komandi kynslóðir Volvo bíla.
Nýr Volvo XC90 er með fullkomnasta öryggisstaðalbúnaðinn á markaðnum og býður upp á samsetningu af afli, eyðslu og losun sem ekki hefur verið í boði áður. Volvo hefur einnig gefið út að innanrými Volvo XC90 sé hannað með meiri lúxus en nokkuð innanrými sem hefur áður verið í boði hjá framleiðandanum.