Ólafur Árnason starfað í 50 ár hjá Velti og Brimborg

Sölustjóri Volvo atvinnutækja hjá Velti (Brimborg) hefur verið starfsmaður í 50 ár.  Þetta er hann Ólafur Árnason, sem margir úr þessum geira kannast við. Frá 18 ára aldri hefur hann starfað við að þjónusta og selja Volvo á Íslandi.
“Það var mikill fengur fyrir Brimborg að fá Óla í sínar raðir þegar félagið tók við Velti og Volvo árið 1988. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma, fyrst á Suðurlandsbrautinni hjá Velti, svo á Bíldshöfðanum hjá Brimborg og nú á Hádegismóum og aftur undir merkjum Veltis.” – kom fram í tilkynningu frá Velti á þessum tímamótum Óla.
Gamli bíllinn í andyri Veltis á Hádegismóum,  gerði Óli upp frá grunni.

Heimsókn í Velti 2022

Comments are closed.