Safnaferð á Akranes – Gunnars Garage

Það er komið að safnaferð ársins 2025, sem er nú haldin laugardaginn 3. maí. Stefnt er að því að fara á einkabílasafn á Akranesi sem kallast Gunnars Garage. Safnið er eitt það glæsilegasta og stærsta sem einkasafn hér á landi.
Planið:
Hittumst kl. 12:00 á Bílaplani Bauhaus. Lagt af stað 12:10 til Akranes. Reiknum með 40 mín. í akstur. Stoppum við bílastæði á Faxabraut við höfnina.
Fáum móttöku kl. 13:00 á bílasafninu og reiknum með 2ja tíma stoppi.
Stefnum á að setjast svo inn á veitingastað og fá okkur mat. Hver og einn greiðir fyrir sinn mat.
Frjáls akstur heim.
Biðjum alla að fylgja reglum safnsins. Um 20 fornbílar eru þarna inni.
Plan B:
Ef eitthvað breytist varðandi einkabílasafnið þá er varaplanið að fara á Laxness safnið Gljúfrastein í Mosfellsdal.
Þetta er eingöngu viðburður fyrir félagsmenn og maka.
Vinsamlegast skráið ykkur á viðburðinn á fésbókinni eða sendið okkur skilaboð.

Comments are closed.