Safnaferð í Essó safnið í Reykjavík
Það er komið að næsta viðburði félagsins. Esso safnið býður okkur í heimsókn fimmtudaginn 2. október næstkomandi kl. 17:15-19:00. Safnið hefur verið starfrækt í nokkur ár og höfum við verið að reyna finna hentugan tíma til að koma þessu í viðburð fyrir félagsmenn. Safnið geymir ýmsa muni og nokkra bíla tengdu sögu Essó á Íslandi. Safnið er opið vikulega á fimmtudögum og hafa aðrir bílaklúbbar hér á landi heimsótt safnið.
Essó safnið er í Skútuvogi 11, bakvið Halldór Jónsson heildsala. Það eiga að vera næg bílastæði þarna í kring, en einnig er hægt að leggja við Húsasmiðjuna og ganga yfir.
Fyrir ári síðan flutti safnið úr Kópavoginum og í Skútuvoginn. Safnstjóri er Jóhann Örn Ingimundarson.
Hlökkum til að sjá þetta safn og vonandi komast sem flestir.
Vinsamlegast skráið ykkur á viðburðinn á fésbókinni eða með tölvupósti.

