Takið frá sunnudaginn 22. mars. Við verðum með viðburð í samstarfi við félaga okkar Bartosz, en hann leigir núna skúr að Kársnesbraut 106 í Kópavogi. Þar vinnur hann að nokkrum verkefnum og er með 4 volvo bíla sem allir eru í kringum 20-25 ára aldurinn. Bartosz bauð okkur heim í Garðabæinn fyrir tveimur árum en núna er hann fluttur í Kópavoginn og er spenntur að taka á móti okkur og spjalla við okkur um hans helstu verkefni.
Volvoklúbburinn býður uppá létt kaffi og með því á þessum viðburði fyrir okkar félagsmenn.
Mæting kl. 14:00 og er skráning á facebook.
Leiðarlýsing: Keyrt frá Kringumýrarbraut, beygt af niður á Kársnesbraut, ekið að Nesvör,beygt hægri þar og strax aftur til hægri bakvið Kársnesbraut 106.Þar á bakvið er stórt bílastæði og aðgangur að skúrnum.
Bílastæði eru merkt með grænum lit á neðri myndinni.



