Suðurlandsrúntur og Bíladella 2026 – laugardaginn 13. júní

Nú er komið að fyrsta viðburði sumarsins, en það er okkar árlegi Suðurlandsrúntur til Hvolsvallar á Kaffi Eldstó, laugardaginn 13. júní n.k. Þór og frú taka þar á móti okkur og félagsmenn geta pantað sér veitingar og drykki á meðan við sitjum á spjalli. Í bakaleiðinni ætlum við að heimsækja Bíladellu 2026 á Selfossi á vegum Bifreiðaklúbbar Suðurlands. Frítt er inn á þann viðburð. Staðsetning Bíladellu er Fjölbrautarskólinn á Selfossi, FSU, við Tryggvagötu 25. Þar eru fjölmörg bílastæði í næsta nágreni.

Dagskrá:

Hisst verður við Orkuna Vesturlandsvegi. Brottför 10:30 frá Orkunni Reykjavík. Ekið að N1 Selfossi, Austurvegi 48. Stutt stopp og haldið áfram að Hvolsvelli. Matur og spjall á Eldstó Hvolsvelli, þar sem hver og einn pantar sér og greiðir fyrir sig. Áætluð brottför ekki síðar en 15:00 og ekið á Bíladellu 2026 á Selfossi. Viðburði verður slitið þar og frjáls akstur heim.

Áætlaður aksturstími á áfangastað er 1,20 klst. eða 98 kílómetrar.

Viðburðurinn er fyrir félagsmenn Volvoklúbbs Íslands, sem greitt hafa gjöld ársins 2026.

Skráning á viðburðinn er á fésbókinni.

Comments are closed.