Þann 25.maí síðastliðinn stóð Volvoklúbbur Íslands fyrir sínum árlega Suðurlandsrúnti. Viðburðurinnn hefur verið haldinn á hverju ári síðan 2014 og því elsti viðburður félagsins sem enn er haldinn árlega. Í ár var algjör met mæting en 17 bílar mættu að þessu sinni og vel yfir 30 manns. Eins og venjulega var mæting við gömlu Shell stöðina við Vesturlandsveg og var hópurinn það stór að við áttum í vandræðum með að koma okkur fyrir á planinu. Eftir smá spjall og skjall yfir fararkostum lá leiðin yfir Hellisheiðina til Selfossar þar sem bættist í hópinn.
Eins og venjulega sá Þór um að flotinn kæmist fyrir á planinu fyrir framan Kaffi Eldstó en í fyrsta skipti í langri sögu þessa viðburðar þá lentum við í smá veseni að koma öllum fyrir inni á Eldstó en öll fyrri ár hefur verið pláss fyrir hópinn inni í hliðarsal en í þetta skipti þurftum við að taka allt kaffihúsið undir hópinn. Þetta varð til þess að hópurinn skiptist aðeins upp en við vonum að félagsmenn sem mættu hafi átt góðan dag með okkur.

















