Suðurlandsrúnturinn 2025

Við biðjum Volvoáhugafólk að taka frá dagana 24. -25. maí en þá helgina ætlum við að halda okkar árlega Suðurlandsrúnt. Þessi viðburður er opinn öllu áhugafólki og er elsti viðburður félagsins sem er ennþá haldinn á hverju ári.

Endanleg dagsetning og tímasetning verður auglýst um næstu helgi en eins og fyrri ár þá munum við leggja af stað frá gömlu Shell stöðinni við Vesturlandsveg og keyra í halarófu til Selfoss þar sem okkur hefur oftar en ekki tekist að bæta í lestina fallegum Volvo bifreiðum. Þaðan er svo stefnan sett á Hvolsvöll þar sem við tökum undir okkur Kaffi Eldstó þar sem hópurinn hefur tök á að næra sig og spjalla.

Safnaferð um Suðurland 2024

 

Comments are closed.