Suðurlandsrúnturinn 2026
Laugardaginn 13.júní stóð Volvoklúbbur Íslands fyrir sínum árlega Suðurlandsrúnti. Þessi viðburður hefur verið haldinn á hverju ári síðan klúbburinn var stofnaður og fórum við fyrst 2014.
Mæting var góð þetta árið en 10 bílar lögðu af stað frá Vesturlandsvegi í blíðskaparveðri. Eins og venjulega var tekið stutt stopp á Selfossi en í fyrsta skipti í sögu viðburðarins bættist enginn í lestina þetta árið. Líklegasta skýringin á því er að sama dag stóð Bifreiðaklúbbur Suðurlands fyrir Bíladelludögum á Selfossi.
Eftir stutt stopp á Selfossi lá leiðin á Hvolsvöll þar sem stórglæsilegur Amazon leiddi hópinn inn á bílaplanið á Kaffi Eldstó sem hefur verið áfangastaður ferðarinnar öll árin. Þór tók að sjálfsögðu á móti okkur og lóðsaði hópinn í stæðin fyrir framan húsið. Eins og í fyrri ferðum var mikið rætt og skrafað á Eldstó og þá helst málefni sem tengdust nýjum og gömlum Volvo bifreiðum á meðan hópurinn smjattaði á hamborgurum sem eru í algjörum sérflokki.
Eftir um tveggja tíma spjall og allir mettir fór hópurinn til baka á Selfoss að kíkja á bílaflota Bifreiðaklúbbs Suðurlands en þeir voru með flotta sýningu við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar voru bílar af öllum stærðum og gerðum en því miður eitthvað lítið um Volvo.
Við þökkum kærlega þeim félagsmönnum sem tóku þátt í þessum viðburði og hvetjum félagsmenn til að fylgjast með heimasíðu og facebooksíðum klúbbsins því það styttist í næsta viðburð.















































