Hópakstur í Borgarnes

Það er komið að fyrsta viðburði sumarsins hjá klúbbinum. Okkar árlega ferð á Bifhjóla og fornbílasýningu í Borgarnesi verður farin laugardaginn 11. maí 2019. Við munum hittast á Bílastæði Bauhaus kl. 11:50 og hefja akstur kl. 12:10. Öllum Volvo bílum óháð aldri er frjálst að mæta. Núna er auðvitað frítt í göngin og einnig frítt inn á sýninguna. Volvo fornbílum Lesa meira →