Það voru 92 lið sem kepptu í B-flokki 10 manna liða og þar af voru 60 blönduð lið, karla og kvenna, í WOW Cyclothon 2016. Team Volvo stóð uppi sem sigurvegari blandaðra liða og það var svo lið World Class sem landaði öðru sætinu og Team Sana frá Akureyri því þriðja. Þess má geta að Team Volvo lenti í fjórða sæti yfir öll lið í B-flokki 10 manna liða.
Team Volvo átti gott samstarf með karlaliði DeCode, XY og CCP&SWIFT en háði harða barráttu við blandað lið frá World Class og í lokin skildu 18 mínútur og 22 sekúndur liðin að í endamarki þar sem Team Volvo hafði betur.