Þegar volvo 264 kostaði 12 milljónir – gamla auglýsingin
Í auglýsingu fyrir 45 árum var Vikan að auglýsa bíla hjá Velti hf, Suðurlandsbraut 16. Volvo 244 DL kostaði 8,1 milljón og Volvo 245 DL station 8.9 milljónir króna. Forstjórabíllinn, Volvo 264 GLE kostaði hér 12,8 milljónir, á meðan ódýrari bílarnir eins og Volvo 343 DL var á 6,9 miljónir og Volvo 345 á 7,3 milljónir. Þetta var árið 1980.
Þessi volvo í auglýsingunni frá 1980 fékkst 5 gíra eða sjálfskiptur. Eyðslan var skráð 8L á 100 km.
Ári síðar, eða í byrjun árs 1981 var myntbreyting og tvö núll voru tekin aftan af krónunni. Þá var Volvo 244 auglýstur á aðeins 124.900 kr.
Það má því sjá á þessum auglýsingum þegar gengisbreytingin var að nokkur hækkun var t.d. á Volvo 244, sé rýnt í verðin fyrir breytinguna.


