Leigubílafyrirtækið Uber hyggst kaupa 24.000 sjálfkeyrandi bíla frá Volvo. Á borðinu er samningur án skuldbindingar þar sem Uber hyggst kaupa Volvo bifreiðar með sjálfkeyrandi kerfi. Um er að ræða flaggskipið frá Volvo, XC90, og yrði samningurinn frá 2019-2021. Ekki er búið að hanna kerfið sem Uber myndi fá í bílana. Þetta yrði langstærsta pöntun sem Volvo hefur fengið, ef af þessu verður.
Uber hefur verið að prófa tilraunabíla frá Volvo í yfir eitt ár, með ökumönnum, ef sjálfstýringin skyldi klikka. Prófanir hafa farið frá í Bandaríkjunum, eða nánar í Arizona, Pittsburgh og víðar.
Frá þessu er greint á bílavefnum, Autoblog.com.