Vel með farinn Volvo 244 GL árgerð 1980

Þessi eigulegi Volvo 244 GL er nú aftur auglýstur til sölu, en hann var staðsettur á Austurlandi á síðasta ári. Bíllinn er árgerð 1980, sjálfskiptur og á númerinu U1980.  Aksturinn aðeins 143.000 km. Núverandi eigandi segir ekkert ryð vera í bílnum, en hann sé þó ekki uppgerður. Bílnum fylgi mikið af dóti að hans sögn. Smá gat á pústi stendur einnig í lýsingu.
Eins og sést á myndum  er hann vel með farinn að innan og utan.
Hann kemst vonandi aftur í góðar hendur þessi glæsilegi bíll.
Bíllinn var auglýstur í fésbókarhópi Volvoklúbbsins, og geta áhugusamir skoðað málin betur þar.

Comments are closed.