Í ónefndum skúr á ónefndum stað á Íslandi er skemmtilegt skúrverkefni í gangi og hefur staðið í allmörg ár. Fyrir mörgum ár var Jóhannes Ellertsson hjá Vestfjarðarleið með þetta verkefni að breyta Volvo Laplander árgerð 1980, bílnúmer (R50004), en bíllinn var þá ekinn aðeins 500 km. Bíllinn stóð í mörg ár ókláraður. Síðustu ár hefur hinsvegar Lárus Eiríksson nokkur unnið ötulega að klára þetta frábæra verkefni, en hann er frændi Jóhannesar, fyrri eiganda bílsins.
Verkefnið hófst aftur árið 2019 og var þá grindin grunnuð og tekin af og undirvagn og vél fékk yfirhalningu. Mörg handtök voru að setja saman bílinn aftur og hófst sú vinna vorið 2019. Í upphafi árs 2020 var bensíntankur settur í bílinn, gírkassi og bremsur. Í lok árs 2020 var búið að mála mótorinn og koma honum fyrir. Í framhaldinu var mælaborðinu komið fyrir og tengt. Í vor og vetur hefur bílnum svo smátt og smátt verið komið saman eins og myndir sýna.
Lokaður hópur er á Facebook sem kallast Laplander yfirbygging, en þar er þessi saga rakin í máli og myndum.
Myndir birtar með góðfúsu leyfi Eiríks Lárussonar.