fréttir

Volvo 940 rallýbíll til sölu

Arnkell Arason hefur átt glæsilegan Volvo 940 bíl í nokkur ár og lagt mikið í hann. Þessi bíll hefur verið rallýbíll hér á landi. Bíllinn er árgerð 1991 og er skráður fornbíll og er tilbúinn í keppni að hans sögn. Vélin er B230FB. Númer bílsins er KX-258. Sex gíra kassi er í bílnum.

Upplýsingar frá eiganda:

Volvo 940, KX-258
Árgerð 1991 – skráður fornbíll
Vigtar 1340 kg tilbúinn í keppni
Nýsmíðaður 2018 – keppt í þremur keppnum, keyrður aðeins um 200 sérleiðakílómetra.
Veltibúr frá McKinstry Mótorsport, – FIA vottað með mörgum aukastífum og tengingu fram í demparaturna.
Boddy sandblásið, allt soðið upp og mikið styrkt á mörgum stöðum í samræmi við reynslu af fyrri bíl.
Allur málaður 2018, innan sem utan
Nýir stólar og belti frá Mckinstry
Nýtt stýri frá Mckinstry
Rafkerfi allt lagt nýtt með PMU (Power Management Unit)- engin öryggi né relý.
Sparco Intercom
Takkaborð á milli sæta
Heimasmíðaður 50L bensíntankur í skotti, þar sem bensíndæla og sía eru einnig.
Allar bensínlagnir lagðar inn í bíl
Rafgeymir í skotti
Hlífðarpanna úr 8mm áli, auðvelt að setja undir á innan við mínútu

Mótor B230FB
531 hedd – annað fylgir með í topplagi
Mótor tekinn upp í Svíþjóð fyrir um 10-15 keppnum
Skipt um hedd 2017 – Nýr knastás (efirlíking af knastás úr blöndungsbíl, töluvert heitari en úr innspýttum), stífari ventlagormar, planað (Kistufell) og portað.
Flækjur fylgja með – orginal grein er í
K&N sportsía
Mótortölva frá Baldri – Mappað og sett upp af honum sjálfum.
Mótorrafkerfi allt nýtt „Milspec“.
Mótorfestingar smíðaðar til að þola jarðsprengju, mótorbiti sérstyrktur og uppsmíðaður.

Drifrás:
6 gíra ZF S6-37 BMW gírkassi, með ásoðnu Volvo-kúplingshúsi. Ný lega í skiptistöng og stage 1 race-kúpling.
Volvo 1031 hásing, 5.13 hlutföll frá Sellholm (keypt ný í bílinn til að passa við gírkassann) og ný diskalæsing (LSD).
Bremsur, 2 höfuðdælu Wilwood með bremsustilli fram/aftur og pedalabox smíðað utanum.
Vökvahandbremsa
Bremsulagnir lagðar inn í bíl
Orginal Volvo bremsur með nýjum dælum (2018) að framan og aftan – ásamt diskum og klossum frá Brembo og Borg&Beck.
Fjöðrun:
Bilstein VOC Insert að framan með „grænu rallýgormunum“.
Bilstein VOC demparar og gormar úr station bíl að aftan
Lélegri aukafjöðrun fylgir auk nýrra stífari aftugorma
Sérsmíðuð 4 link að aftan með styrktum spyrnum (skriðdrekasterkt!), hannað af Ara Arnórssyni bílasmið og grúskara.
Með fylgir
4 Braid rallýfelgur með lélegum dekkjum + 1 í viðbót sem er skökk
Slatti af slitnum rallýdekkjum og 6-8 stálfelgur
15“ álfelgur með gangi af slikkum
5 gíra m47 Volvo gírkassi + svinghjól + kúpling.
Fullt af allskonar gramsi og varahlutum sem safnast hefur upp í mörgum kössum.
1031 orginal LSD aukahásing með drifi í ólagi, með fylgir annað drif til að skipta út.
Dúkar, búkkar og allskonar fleira sem nýtist vel!


Verðhugmynd er 1 milljón fyrir allt eða tilboð. Hægt að hafa samband við eiganda í síma 615-4678.

Viðburðir