Volvo ES90 rafbíll var frumsýndur í dag. Bíllinn er stórglæsilegur lúxus fólksbíll. Hann er væntanlegur til Íslands í byrjun árs 2026 í fjórhjóladrifs útgáfu. Bíllinn býður upp á allt að 700 km drægni og tekur aðeins um 10 mínútur að bæta við 300 kílómetra drægni í hraðhleðslu miðað við 350 kW.
Þessi tegund verður eitt af flaggskipum Volvo næstu árin. Bíllinn fæst í 7 litum og dekkjastærðum 20″-22″. Skottið er 424 lítrar en verður 733 lítrar ef þú leggur niður sætin.
Verður fáanlegur í þremur gerðum, Core, Plus og Ultra.
Nánari upplýsingar má finna hér.














