Alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt og glæsilegt tengt Volvo. Einn stjórnarmaður var á ferðinni um Vestfirði og stoppaði í Handverksmarkaði Össu á Króksfjarðarnesi. Þar var að finna glæsilega handprjónaða peysu og húfu með volvo merkinu og letri. Hreint frábært að sjá svona íslenska framleiðslu. Nú er að bara að líta við næst á Króksfjarðarnesi og skoða varninginn eða kaupa sér. Þarna er líka nytjamarkaður og hægt að kaupa súpur og samlokur. Tilvalið stopp á leiðinni vestur á firði.
Þessi góði markaður er almennt opinn alla daga á sumrin frá kl. 10-18. Upplýsingar um verð og stærð fylgdu ekki.

