Volvo-hlaðborð 21. nóvember
Stjórn Volvoklúbbs Íslands skipuleggur nú í fyrsta sinn Volvo-Hlaðborð sem haldið verður á Gullhömrum laugardaginn 21. nóvember 2026 kl. 19:00. Við höfum tekið frá borð fyrir allt að 30 manns, en möguleiki er að stækka það fari skráning yfir fjöldann. Hægt er að millifæra eða óska eftir kröfu fyrir kostnaði sem er 15900 kr. skv. gjaldskrá Gullhamra. Drykkir greiðast sér og eru á kostnað hvers og eins. Athuga í salnum eru langborð og hringborð og gæti því hópurinn dreifst á fleira en eitt borð eftir fjölda skráninga.
Hægt verður að millifæra eða greiða kröfu frá 1.-7. nóvember. Engar breytingar eða endurgreiðslur eru eftir það. Volvoklúbburinn er aðeins skipuleggjandi á þessari hópapöntun, en allur matur og annað er í höndum Gullhamra. (Athuga ekki er tekið við greiðslum fyrir þennan tíma)
Við hefjum hér með skráningu á Volvo-hlaðborðið þann 21. nóvember. Nánari póstur verður sendur út þegar nær dregur á netföng þeirra sem skráðir.
Smellið á tengil fyrir skráningu.
Skráning:
Nánari upplýsingar:
Skráning á Volvo-hlaðborð laugardaginn 21. Nóvember 2026 kl. 19:00.
Vinsamlegst takið fram nafn þess sem er skráður í Volvoklúbbinn og fjölda sem mæta. Skráið að lokum hvort greiðslan verður millifærð eða send krafa frá Volvoklúbbilnum.
Verð: 15900 kr. Pr. mann skv. Verðskrá Gullhamra. Volvoklúbburinn er aðeins milliliður fyrir greiðsluna svo hægt sé að panta fyrir hóp.
Drykkir greiðast sér á staðnum á kostnað hvers og eins.
Lokadagur til að ganga frá greiðslu er 7. Nóvember. Hægt verður að millifæra og greiða kröfu frá 1.-7. Nóvember.
Volvoklúbburinn sér aðeins um að panta fjöldann fyrir hópinn og skila inn greiðslunni.
Engar endurgreiðslur eru mögulegar eftir 7. Nóvember.
Magnús og Ingólfur sjá um skipulag f.h. Stjórnar Volvoklúbbsins.
Við tökum frá fyrir 30 manns og skilum svo inn fjöldatölum ef það er meira eða minna í skráningu hjá okkur.
Makar velkomnir.
Matseðill:
Jólahlaðborð
Forréttir
Úrval af síldarréttum með rúgbrauði og smjöri
Graflax með sinnepssósu
Heitreyktur lax með tartarsósu Sjávarréttasalat
Sjávarréttapaté með hvítlaukssósu
Hátíðarpaté með cumberlandsósu
Grafið lamb með fersku salati
Aðalréttir
Hangikjöt með uppstúf
Sinnepsgljáður hamborgarhryggur
Hægeldað lambafillet
Ekta dönsk fleskesteik
Salvíukryddaðar kalkúnabringur
Meðlæti
Mozzarella með tómat og parmesanosti
Sykurbrúnaðar kartöflur
Kalkúnafylling
Kartöflugratín
Eplasalat
Ferskt salat
Ábætisréttur
Tobleroneís
——————-
Kristján Guðmundsson laðar fram ljúfa tóna á flygil í borðhaldinu.
Hljómsveit hússins skemmtir undir lok borðhalds til kl. 23.30
