Volvo á Íslandi hefur lækkað verð á öllum nýjum bílum vegna fyrirhugaðra breytinga á virðisaukaskatti sem taka gildi 1. janúar næstkomandi.
Við breytingarnar lækkar virðisaukaskatturinn úr 25,5% í 24% sem þýðir um 1,2% lækkun á verði nýrra bíla. Þess má geta að hlunnindaskattur lækkar einnig sem þessu nemur.
Eins og áður sagði lækkaði verð á öllum nýjum Volvo. Sem dæmi má nefna Volvo V40 sem var á 4.390.000 kr. en er nú á 4.330.000 kr. Volvo XC60 var áður á 8.490.000 kr. en er nú á 8.380.000 kr.
Í einhverjum tilfellum hefur verð á nýjum bílum lækkað um meira en 1,2%. Má þar nefna Volvo S60 Momentum sjálfskiptur sem er nú á 5.990.00 kr. en var á 6.190.000 kr. og Volvo V60 Momentum sjálfkiptur svar er nú á kr. 6.290.000 en var á kr. 6.490.000.
Texti: Volvo.is