Volvo XC90 sigurvegari

Bílar frá Brimborg gerðu aldeilis góða hluti í vali Bandalags íslenskra bílablaðamanna á Bíl ársins 2016. Alls féllu sex verðlaun í skaut Brimborgar, fjögur gullverðlaun, ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Aldrei fyrr hefur eitt bílaumboð hampað jafn mörgum verðlaunum sama árið.

Volvo XC90 sigurvegari

Volvo XC90 stóð uppi sem sigurvegari keppninnar í ár enda stórglæsilegur 7 manna lúxusjeppi með öllu því besta frá Volvo. Það tók Volvo fjögur ár að þróa bílinn og fjárfest var fyrir meira en 11 milljarða dollara í verkefninu. Volvo XC90 hlaut einnig fyrstu verðlaun í flokki jeppa. Finnur Thorlacius, formaður Bandalags íslenskra bílablaðamanna hafði þetta að segja um Bíl ársins 2016 „Dómnefndin féll bæði fyrir ytra og innra útliti Volvo XC90 sem markar ný spor í bílahönnun, en ánægjan minnkaði ekki við akstur bílsins, auk þess sem verð hans ætti ekki fæla neinn frá.“ Yfir 100 nýir Volvo XC90 bílar hafa verið pantaðir.

All_New_XC90_Exterior_2

Fleiri verðlaun til Brimborgar

Aðrir bílar frá Brimborg hlutu einnig verðlaun. Mazda CX-3 var í fyrsta sæti í flokki jepplinga. Mikil eftirspurn hefur verið eftir Mazda CX-3 á heimsvísu og er Ísland engin undantekning og langur biðlisti myndast eftir bílnum. Vel á annað hundrað bílar hafa verið pantaðir. Hinn umtalaði Citroën C4 Cactus lenti einnig í fyrsta sæti í sínum flokki. Brimborg kynnti Citroën C4 Cactus í vor og nú aka um 100 Cactusar um göturnar. Á hliðum bílsins er Airbump® hlífðarklæðning sem ver bílinn fyrir hnjaski í dagsins önn og gefur bílnum um leið afgerandi útlit. Útgangspunktar Citroën við hönnun bílsins voru ekkert prjál, hagnýt og djörf hönnun, einfaldleiki og lágt verð. Mazda2 hlaut þar að auki silfurverðlaun í flokki minni bíla og Ford Mondeo bronsverðlaun í flokki stærri fólksbíla.

Heimild: fréttatilkynning frá Brimborg.

Comments are closed.