Þegar Volvo 343 var kynntur árið 1976 var hann sá fyrsti af nýjum bílum frá hollenska fyrirtækinu Volvo Car BV. Volvo 343 mætti til leiks í mjög mikilvægan geira evrópska markaðarins – smábílamarkaðinn.
Volvo 343 var þriggja dyra hlaðbakur með stóran afturhlera. Bíllinn var nokkuð rúmgóður og með gott farangursrými.
Í upphafi var bíllinn aðeins fáanlegur með 1,4 lítra vél og gírkassa með stiglausa skiptingu. Hann var með afturdrif og gírkassinn var staðsettur við hliðina á mismunadrifinu til að tryggja góða þyngdardreifingu.
Volvo 343 fór í gegnum margar breytingar hvað varðar útlit, vél og gírkassa. Stærstu breytingarnar á útlitinu áttu sér stað árið 1981 og með nýrri framhlið og nýrri innréttingu.
Tæknilegar upplýsingar
Tegund: 343
Framleiðsluár: 1976-1990
Framleiðslufjöldi: 472.434
Yfirbygging: Þriggja dyra hlaðbakur
Vélar: Fjögurra strokka línuvél OHV, 1.397 rúmsentimetrar. Fjögurra strokka línuvél, 1.986 rúmsentimetra. Fjögurra strokka línuvél, 1.721 rúmsentimetri eða fjögurra strokka línuvél, 1.596 rúmsentimetra dísilvél.
Skiptingar: Sjálfkskiptur með stiglausa skiptingu, fjögurra gíra beinskiptingu, fimm gíra beinskiptingu.
Bremsur: Vökvaknúnar diskbremsur að framan og skálar að aftan.