Volvobílar á Árbæjarsafni á 17. júní
Það er alltaf hátíðlegt að kíkja á Árbæjarsafnið á 17. júní. Í dag voru fjórir glæsilegir Volvo bílar meðal þeirra fornbíla sem voru á svæðinu. Tvær kryppur, PV544 og tveir Volvo 142. Sá rauði (X84) er 1970 módel og er sjálfskiptur og Deluxe. Sá blái er beinskiptur og er í eigu Gunnars Bergþórs Pálssonar félagsmanns Volvoklúbbsins. Hann sagðist hafa flutt bílinn sjálfur inn frá Skandinavíu og farið með hann til Bergen með Smyril line ferjunni á sínum tíma þegar það var í boði. Hann segist nýlega hafa látið heilsprauta bílinn og hefur einnig verið að endurnýja krómlista og fleira.
Bláa kryppan er 1963 módel. Mæli með að fólk heimsæki Árbæjarsafnið þegar fornbílarnir eru þar til sýnis.









