fréttir

Yfir 25 manns í sumargrillinu

Þriðjudagskvöldið 30. júní héldum við sumargrillið okkar og var mæting góð þrátt fyrir að engin sól væri á svæðinu og HM í knattspyrnu stæði yfir. Það voru 5 stjórnarmenn mættir til að sjá um viðburðinn og yfir 25 manns létu sjá sig. Ingó grillmeistari sá um að halda hita á grillinu og afgreiddi pylsurnar út af öryggi. Grilluðum 70 pylsur í þessari veislu.

Þökkum þeim sem lögðu leið sína í Grafarvoginn fyrir þennan viðburð.

Við erum að skipuleggja nokkra viðburði í sumar og haust sem verða auglýstir hér á síðunni og á samfélagsmiðlum. Nánari fréttir af því síðar.

Viðburðir